Handlitað garn er í sérflokki....
Það er skemmtilegt, spennandi og krefjandi að prjóna með handlituðu garni og það er auðvelt að verða heillaður af því. Ef þú ert ekki vanur að prjóna með því, eru hér nokkur góð ráð:
Þegar prjónað er með handlituðu garni getur myndast kaflar þar sem litirnir safnast saman. Þetta kallast í fagmáli "Pooling". Það leiðir til þess að þegar þú prjónar t.d. sokka eða peysu úr sama lúknum af garni, safnast litamassarnir oft saman á sama stað frekar en dreifast yfir allan sokkinn eða treyjuna. Þú getur forðast pooling með því að skipta á milli lúkkanna. Þetta kallast Helical/ Helix knitting/ strik. Myndbandið hér að neðan sýnir hvernig það er gert þegar skipta á á milli tveggja lita á garninu, en það er nákvæmlega það sama þegar þú átt að skipta á milli tveggja eins lúkkna af handlituðu garni. Það eru til fjölmörg myndbönd um þessa aðferð á YouTube.
Þegar verkefninu þínu er lokið er gott ráð að þvo það. Best er að gera það í köldu vatni og evt. smá ullarsápu. Ég legg verkefnið síðan á handklæði, rúlla því saman í "pølse" og stíg á það til að pressa vatnið úr. Þetta geri ég til að snúa ekki upp á garnið. Að eftir takið ég það úr handklæðinu og læt verkefnið þorna flatt og ef það þarf að blokka þá gerirðu það núna meðan það þornar.