Beach House Peysa

  • 45,00 kr

UPPSKRIFTIN ER Á DÖNSKU !


Beach House Sweater
er ljós og vel sitjandi peysa sem hlýjar og er þægileg í hversdagsnotkun, en hefur einnig fínleg einkenni sem gera hana klassíska og stílhreina. Hún er prjónuð uppfrá og niður án nokkurrar samsetningar. Fyrst er hún prjónuð fram og til baka þar sem V-hálsmálið myndast. Síðan skiptist til bols og erma, sem prjónast umhverfis og eru kláraðir hvor fyrir sig. Langar ribbrimir á ermum gefa henni notalegt afslappað yfirbragð með möguleika á að brjóta rimmana upp svo að ribröndin sé í tveimur lögum, til dæmis til að vera með skyrtu undir. Peysan er prjónuð um það bil 5 cm styttri en hefðbundnar peysur, þannig að ribröndin sitji fallega á mjaðmagrindinni. Ég mæli með aukavídd miðað við líkamann (positive ease) um 5–10 cm. Ef þú ert yfir stærð XL mundi ég ráðleggja mest 5 cm aukavídd.

_____________________________________

Stærð: XXS (XS) S (M) L (XL) XXL (3XL) 4XL

Fullt bringarmál: 84 (88) 98 (104) 110 (117) 124 (131) 139 cm

Heildarlengd: 49 (51) 53 (55) 58 (59) 60 (61) 64

Garn: A knitters World Baby Suri Alpakka 50g/ 300m

Einnig er hægt að nota Fluffy

Garneyðsla: Litur A: Ólitað/hvítt 50 (50) 50 (50) 50-100 (50-100) 100 (100) 100g

Litur B: Beach House 100 (100) 100 (100) 150 (150) 150 (150) 200g

Litur C: Dark Beach House 100 (100) 100 (100) 100 (150) (150 (150) 150g

Athugaðu að prjónað er með 2 þráðum í gegnum allt verkið.

Samtals garneyðsla: 1500 (1500) 1500 (1500) 2100 (2100) 2400 (2400) 2700 meter

Nál: Prjónn nr. 4,5 mm á hring + 3,5 mm til ribs

Prjónfesting: 18 lykkjur x 24 umferðir á 10 cm í sléttprjóni á hringprjóni nr. 4,5.